BirkiVist er þverfræðilegt rannsókna- og þróunarverkefni er miðar að þróun skilvirkra leiða við endurheimt birkiskóga á landsvísu. Í verkefninu eru greindar helstu hindranir og tækifæri fyrir náttúrulegt landnám birkis og hvernig samfélagslegir þættir hvetja eða letja endurheimt. Einnig eru metin ávinningur og afleiðingar endurheimtarinnar fyrir kolefnisbindingu, vatnsbúskap, líffræðilega fjölbreytni, landslag og fagurferði, auk þýðingar birkis í listum og menningu.
Fréttir og tilkynningar
Fjölbreytt og þverfagleg doktors- og meistaraverkefni við rannsóknir er tengjast endurheimt birkiskóga
Fjölbreytt doktors- og meistaraverkefni í boðiSee English below Fjölbreytt og þverfagleg doktors- og meistaraverkefni...
Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld
ILMBJÖRK. BETULA PUBESCENS. er ríkjandi tegund í náttúrulegum skógum á Íslandi og birkivistkerfi veita...
Framvinda botngróðurs við endurheimt birkiskóga
Útbreiðsla birkiskóga á Íslandi er nú aðeins brot af því sem talið er að hún hafi verið við landnám (Snorri Sigurðsson...
VP4
SAMÞÆTTING OG STJÓRNUN
Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld-áskoranir, leiðir og ávinningur
Birki (Betula pubescens) er ríkjandi tegund í náttúrulegum skógum á Íslandi og birkivistkerfi veita margvíslega og mjög verðmæta vistkerfisþjónustu. Stórfelld eyðing birkiskóga á sl. 1100 árum skildi eftir litlar og einangraðar leifar en vísi að náttúrulegu landnámi birkis má nú sjá í öllum landshlutum. Víðtæk endurheimt birkivistkerfa er verkefni með fjölþætta umhverfislega, samfélagslega, efnahagslega og menningarlega skírskotun. Í verkefninu verða greindar helstu hindranir fyrir náttúrulegu landnámi birkis og hvernig stjórnkerfi, stofnanaumhverfi og samfélag hvetur eða letur endurheimt. Áhersla er lögð á þverfræðilega nálgun og ávinning af samþættingu ólíkra fræðasviða.
Verkefnið felur í sér umfangsmikla greiningu á stjórnkerfinu að baki vernd og endurheimt og á samstarfi haghafa og viðhorfum almennings; allt þetta munum við síðan tengja við vistfræðilegar forsendur fyrir árangursríkri endurheimt. Ein afurð verkefnisins verður þannig vistfræðilegar og stjórnsýslulegar lausnir og verkfæri til að auka skilvirkni endurheimtar.
Nýnæmi verkefnisins felst m.a. í breiðri samvinnu milli margra aðila (þriggja háskóla og þriggja fagstofnana á sviði umhverfismála með samstarfi við fleiri stofnanir, skóla og sprotafyrirtæki) og sem leggja til ólíka sérþekkingu og gagnagrunna. Afraksturinn mun hjálpa Íslandi að uppfylla markmið Parísarsamkomulagsins og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og styrkja stefnumótun á sviði umhverfismála. Með BIRKIVIST er ætlunin að stuðla að skilvirkni, samfélagslegri sátt og aukinni þátttöku almennings í endurheimtarverkefnum.
Hafa samband
Ása L. Aradóttir: asa@lbhi.is
Kristín Svavarsdóttir: kristins@land.is
-
Ilmbjörk (Betula pubescens) eða birki er algengasta skógartréð á Íslandi
-
Birkiskógar eru einu náttúrulegu skógar landsins